|
|
01.02.2007 03:58:07 / iriserla
Ég er búin að flytja mig um setur ákvað
að fara í skóla í Las Vegas í 6 mánuði..., klára námið þar


nehhhh þarna fór ég alveg með ykkur.., ég flutti
mig bara um setur hérna á veraldarvefnum.., di is ma new site..,
mothasssss...!!!!
www.123.is/nero
p.s. auðvitað Neró.., mí
lov him 
»
29.01.2007 07:25:33 / iriserla
Þessi sæta stelpa á afmæli í
dag, hún er orðin 18 ára...!!!!

Hún er alveg yndisleg, góðhjörtuð,
umhyggjusöm og bráðgáfuð, og eru fá orð sem geta lýst henni til
fulls..., og vil ég
hér með óska henni til hamingju með daginn og vona að hún njóti
dagsins í botn.., hún á það svo sannarlega skilið..
Til hamingju
með daginn elsku Erla Dröfn *koss*
Annars er bara lítið að frétta af mér
hérna.., er búin að læra alla helgina.., ég skellti mér samt á
MojoRoom á
föstudagskvöldið og þurfti ég að bíða í röð í heilann klt..,
sjiiiii ég hélt að þetta væri djók.., næst mætti ég kl níu og verð
fyrst á staðinn sko..., en staðurinn var pakkaður as usual.., en ótrúlegt
en satt eftir allt djammið á mér uppá síðkastið ákvað ég bara að
vera á bíl og vaknaði líka bara svona eldhress á
laugardaginn.., laugardagskvöldið fór ég líka bara á
blockbuster og
leigði mér spólu og eldaði góðan kvöldmat.., kjúlla í karrýsósu með
hrísgrjónum..., mmmmm..!!!! Svo var afgangurinn
borðaður í dag Vissu þið að ég er lystakokkur
með meiru??? Mér fer fram í eldhúsinu með hverjum
deginum sko.., hehehe..
Á fimmtudaginn skrapp ég til Signýjar
til Palm Beach til að hitta Dennu (kisukonan á Nesinu!!) og fórum
við saman í mallið og skelltum okkur svo á Tai-Restaurant og borðaði ég í
fyrsta skipti með prjónum.., já takk..,
pínu erfitt í fyrstu en svo kom þetta allt saman þó svo að grjónin
vildu bara vera á disknum.., það þarf bara smá tækni í þetta..,
kemur allt með kalda
vatninu..
Búðirnar hérna úti eru orðnar
stútfullar af Valentines
dóti.., vá hva kanarnir missa sig alltaf í öllu
hátíðisdögunum.., nei ég er ekki að grínast sko.., ég fann hjartalaga bleikt
Snickers for example.., valentínusarkort sem syngja
ástarsöngva þegar þú opnar þau, og gasblöðrur sem segja “I love
you” hahahaha svo ekkvað fátt sé nefnt sko... ég er samt ekki
enn búin að finna mér Valentínus.., er með
nokkra á listanum.., þarf bara að velja aðeins úr.., þið vitið
náttla hva ég er ferlega pikkí...

Svo var mér að bjóðast að fara
til Miami næstu
helgi.., SuperBall
helgin og þá er víst allt pakkað í DownTown Miami.., úfff strákarnir eru víst með
svítu á leigu og myndi ég þá vera eina gellan með einhverjum
8 gaurum.., ætla hugsa
málið en sjiiiiii hva þetta er freistandi sko..!!! Ekki leiðinlegt
að kíkja til MIA frá
fös til sun.., fæ eiginlega pínu spenning í magan við hugsunina..,
VILL EINHVER KOMA MEÐ
MÉR??? Á sunnudaginn næsta er svo Superball partý í skólanum
mínum.., og eiga strákarnir að vera búnir að safna skeggi og fær
hann verðlaun sem er með flottasta skeggið.., það er sko of mikið
djamm freistingar næstu helgi... verð að vera dugleg að læra í
vikunni 
Vá hva ég hef ekki mikið að segja
samt.., það er kalt á
Flórída, mér langar í
fisk, soðna ýsu stappaða með kartöflum og smjörva ekki
“I cant believe its not
butter” smjöri enda trúi ég alveg að þetta sé ekki
smjör..!!! 
ÆM ÁT NÁ
ÍRIS DA .. JÚ KNÓ DA
REST
»
24.01.2007 06:19:19 / iriserla
Jæja þá er þessi langþráða bið eftir
nýju bloggi liðin..
Ég veit nú ekki
hvar á að byrja sko, allavega hef ég gert mikið síðan ég birtist
hérna aftur í ameríkunni fyrir 2 vikum.. ætli ég skelli ekki
þessu fína punktakerfi á þetta allt saman..
-
Flugið hingað út voru heilir 8 tímar, ég fékk njálg í rassinn
eftir fyrstu 2 tímana
þannig þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig hinir 6 voru ~njálgur~
-
Flugið til Philly var reyndar bara rúmir
tveir tímar þannig það var ekki mikið um njálg þar, nema bara
mikill spenningur í loftinu yfir því sem beið okkar í
Philly
-
Ég og Begga mættum aðeins of seint í flugið til Philly og
þar að leiðandi misstum við af því,
en sem betur fer var annað flug 2 tímum
seinna

-
Í Philly var
svo djammað, djúsað, hlegið, daðrað,
dansað, étið, verslað, meira daður og meira djamm en ekki mikið um
svefn.., minnir mig ekkvað á DC-ferðina 2 mánuðum áður..
þið sem viljið dirty details verðið bara að hringja.. og ohhh yeahhh they are dirty
dirty...
-
Philly heillaði mig uppúr skónum.., svaka borg með
háhýsum og fallegum drengjum
get ekki beðið eftir því að koma til
þín aftur Herbie
-
5´2”
hahahahaha(einkahúmor)
-
Ferðin var lengd um 2 daga vegna þreytu og “2$ Tuesday”, allt á barnum 2
dollassssss.., úffffff svakalegt

-
Við enduðum í hommapartýi eftir eitt djammið sem
var mesta snilld í heimi.., hommar af öllum stærðum og gerðum og
voru totally
georgeous...

-
Begga verslaði svo mikið í mallinu, að hún þurfti
að fá hjálp með alla pokana sýna.., ég fátæki námsmaðurinn sparaði
peninginn til að eyða honum á djamminu..

-
Við komum aftur til Vero Beach á fimmtudeginum..,
steinsofnuðum til miðnættis., alveg búnar á því
sko..
-
Föstudeginum fórum við svo á MojoRoom sem er klúbbur með Andy
og Brian úr skólanum, löggan náði að stoppa mig tvisvar það
kvöld..

-
Ég stöðvaði ekki bílinn alveg á stöðvunarskyldu og löggan
náði í skottið á mér.., og þá kom í ljós að númeraplatan á bílnum
mínum rann út í október.., HAAAAA.., ég hafði ekki hugmynd
um að númeraplatan gæti runnið út og sérstaklega mánuði
eftir að ég fæ hana
ég er ekki komin með Florida ökuskírteini
þannig löggan hafði 3 ástæður í að gefa mér sekt.., en ég er með
svo ómetanlegt bros og
lék mig svo svakalega góða að hann sagði mér bara að fara á
mánudaginn að redda númeraplötunni og vinna síðan í ökuskírteininu
þegar ég hef tíma.., hehehehehe.., GÓÐ..
-
Seinna um kvöldið stoppaði löggan mig aftur útaf
númeraplötunni og ég alveg, “oh my god, you guys just love me
tonight” með svaka hreim náttla.., og ég náttla spilaði
sama leik eins og áður, orðin nokkuð vön líka.., löggan gaf
mér bara warning svo að
næsta lögga sem myndi stoppa mig myndi sjá að ég hef verið stoppuð
og myndi redda þessu á mánudaginn.., ég er nú meiri grísinn..!!!
hahaha I love man in
uniforms

-
Svo var partý hjá Kourtney kennara á laugardeginum og við
Begga látum náttla sjá okkur, það partý endaði náttla með
drama og svo kom
löggan.., sverða hún
eltir mig sko..!!! Ég spurði hana hvort hún vilji
ekki skutla mér heim og sagði svo “hey u are supposed to protect and
serve, right” þannig þeir skutluðu mér og Beggu heim
hehehhee..., við sátum afturí með rimla í öllum rúðum og mér
leið eins og ég væri í Law&Order þætti sko..,
hehehe

-
Svo skutlaði ég henni Beggu minni upp á flugvöll áðan..,
buhuuuu buhuuuu soldið
leiðinlegt að hún sé farin.., var alveg ógesslega gaman hjá okkur
sko.., úffff..!!!
-
Hún verslaði náttla eins og vitleysingur og þurfti að
kaupa sér auka tösku og alles
-
Jæja það er komið nóg af því góða.., þarf að detta núna
ofan í skólabækurnar og finna mér einhvern kærasta sem vill vera
Valentínusinn minn...


Vilt þú vera minn
Valentínus??
Ég er búin að setja inn myndir frá
DC og síðan á
Jólunum heima..,
frægu gítarmyndirnar
eru ekki settar hér inn fyrir þær sem ekki hafa séð
þær..!!! það er undir myndir2 og er
lykilorðið það sama, “bróðir minn”
svo var líka svaka gaman
Ásgerður að setja inn myndirnar í tölvuna þegar það kemur syrpa
af þér þarna í endann.., HÆTTU AÐ FIKTA KONA..,
hehehehehehe...
Svo er ég loksins komin með
heimasíma.., þannig ég get farið að hringja í ykkur og þið í mig
alveg á fullu..., númer er 772-770-9137
og ég set það í
linkinn hérna til hliðar svo er ég náttla með gemsa og ekki
leiðinlegt að fá SMS
frá ykkur..
Ég kem svo með skemmtilegra blogg
seinna.., kannski eitthvað slúður eða svo..
Ragga.., ég er komin með skypið..,
þarf bara að ná mér í headset og þá getum við aðeins tjattað..,
langar svo að heyra aðeins í þér..
Ég er
með pínu heimþrá núna
Sakna Neró
En góða nótt
Íris Erla
»
08.01.2007 00:02:20 / iriserla
Ég ligg hérna heima í þynnkunni
aldrei þessu vant og er að fara heim til Vero Beach,
Flórída á þriðjudaginn..., cant wait..!!! komin
með nóg af þessum kulda hérna
Begga vinkona verður með í för þar
sem hún á eftir að sprengja visa-kortið sitt, sleikja sólina og
djamma af sér rassinn.., þessi elska

Vá hva ég skemmti mér vel í gær
þeir vita sem vita hehehe... var orðin vel íðí og hafði gaman af
kvöldinu.., og ekki skemmdi það fyrir þegar ég vaknaði og Auður Ósk
skreið upp í rúm, HRESSSSS í þynnkunni Takk
fyrir að koma þið sem komuð 
En ég verð heima annað kvöld
að pakka og allskonar, og þið eruð velkomin að kíkja á mig og segja
bless við frúna sem er að leggja af stað í 8 tíma flug með öllu
tilheyrandi Kannski mar verði með heitt á könnunni og ekkvað með
því jú neva nó 

Vero Beach
svo skelli ég mér til Philly að heimsækja Hörpu á
föstudaginn..., ó það verður ekkvað rosalegt sko úffff púfff
cant wait 2 see ya Herbs

Philadelphia
Ég á eftir að sakna ykkar svo meget meget,
sérstaklega mamí, papí og fallega yndislega
stóra prinsinn minn NERÓ, en ég kem aftur í
júní þegar mamma heldur upp á þrítugsafmælið sitt 
Farið vel með ykkur
Elskiði friðinn og strjúkiði
kviðinn
Sjáumst in 6 months
(tæplega)
Íris Ferðalangur með
meiru
»
05.01.2007 19:08:44 / iriserla
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
--ELSKU
DÚLLURNAR MÍNAR--
Þar sem ég er
að fara af landinu í hitann og sólina á þriðjudaginn
þá verður smá svona teiti á morgun Laugardag fyrir þá sem
vilja koma og segja bless við mig milli drykkja og
rassahristing.. þar sem ég kem ekki heim fyrr en eftir
hálft ár þá þætti mér agalega vænt að fá alla sem
vilja koma..!!!
PARTEY PARTEY
--fæ ekki
nóg af því--

Komið bara hvenær sem þið viljið á
laugardagskvöldið samt svona fyrir miðnætti því það verður
örugglega kíkt á nokkra vel valdna skemmtistaði
Reykjavíkurborgar..
Svo er skyldumæting hjá nokkrum þarna
úti en ég ætla ekki að nefna nein nöfn því þær vita NÁKVÆMLEGA hverjar þær eru..
(vil ekki þurfa að senda nafnlaus
hótunarbréf alla leið frá Ameríku)
Auður Ósk ætlar að vera með
STAND-UP svona eins
og henni er líkt og fleiri uppákomur verða í boði að Þórðarsveig
2 
ALLIR AÐ MÆTA
--sem
vilja, ætla ekki að pína neinn--
Sjáumst hress
og veriði BLESS 
Da
Cat-Lady
»
12.12.2006 05:08:42 / iriserla
Jæja á mar að koma með smá
blogg..
Kl er að verða
hálf tólf hérna á miðnætti og ég ætti að vera löngu farin að sofa
því ég þarf að vakna kl hálf sex í fyrramálið því ég á flug
kl sjö..!!!! OHHHH
men..!!!
En jæja það
styttist að mar komi heim í kuldann.., brrrr, ætla bara að minna þig á
mamma mín að koma með Carhart úlpuna mína þegar
þú sækir mig, já eða
pabbi, eða bara sá sem kemur að sækja mig..!!!! ohhh ég hlakka
svakalega til að koma heim, og KNÚSA KISUNA MÍNA.., mér er
alveg sama hvað þið segið, ég get ekki beðið eftir að sjá
hann..
Núna eru
nákvæmlega 12 dagar til
jóla og ég er búin að kaupa alla jólapakka.., hva er
það.., held að það hafi aldrei gerst, hef alltaf verið á síðasta
snúning á þorláksmessu rétt fyrir 23:00 að reyna að kaupa síðustu
gjöfina.., en jæja þetta er búið, vonandi verð ég ekki stoppuð í
tollinum því ég er að koma heim með heila
eilífð...!!!

Svo er eitt
aðalmálið sko.., systir mín er komin til Íslands svona óvænt með
litla frænda minn sem ég hef ekki séð síðan hann var 4 mánaða og
hann er 2ja ára núna gaman að finally hitta lillan minn..!!!
og systur
mína..!!!
Hmmm hva meira
hef ég að segja.., ég er bara á fullu að reyna að klára blindflugið
áður en ég kem heim en er ekki viss ennþá hvort að það náist..., ég
á eftir að fljúga 2
flug áður en ég tek prófið.., og við sjáum til hvort að þetta
náist allt saman.., því oft þarf mar að bíða eftir að það sé laus
prófdómari, ef ekki þá
þarf ég að taka bækurnar með mér heim og læra fyrir verklega/munnlega prófið.., en
það væri alveg fínt bara að skilja þær eftir hérna í ameríku..,
orðin soldið leið á þeim..!!! 
Úff hva þetta
er ekkvað svo ófyndið
og leiðinlegt
blogg...!!! Sorry görls, þið sem vilduð aðeins brosa og skella
uppúr...!!!
Ég var að setja
myndirnar í tölvuna mína síðan í DC og ó mæ god.., helmingurinn
af þeim er sko óveraldarvefsvænn, ég solleiðis
hló og hló þangað til að ég varð máttlaus.. ó mæ Auður Ósk, ég get
ekki beðið eftir að sýna þér myndirnar.., hahahahahahaa...!!!!
En jæja, ég
ætla að reyna að fara sofa í hausinn á mér
Ætli ég
fái ekkvað í skóinn í nótt???

Goodnight and sleep tight and dont
let
the bedbugs bite you
Íris Erla
p.s. allan tímann sem ég var að skrifa
þetta voru sírenur á fullu fyrir utan svefnherbergisgluggann hjá
mér, löggur og sjúkrabílar og læti..., ojjjjj
SKERÍ...!!!
»
06.12.2006 03:07:09 / iriserla
Jójó,, komin tími á smá öppdeit
hérna sko.., það er alveg nóg að segja frá..!!!
PACK UR BAGS
AND GET SOME FOOD CUZ IT GONNA TAKE A WHILE!!!
DC baby
yeeeeaaaahhhh..!!!
PART 1
Sko byrjum bara á því að ég tók flug
á fimmtudegi til DC þar sem allar freyjurnar um borð voru
karlmenn.., never seen that
before.., ferlega sætir flugþjónar hjá
AirTran..!!!
Svo eftir lendingu í Baltimore sé ég ferlega
myndarlega dömu í bláu sætu hettupeysunni sinni svipast um eftir
ferlega myndarlegri dömu sem er orðin ferlega amerísk með hálflitað
hár niðrá rass..., semsagt.., Auður Ósk að leita af mér..
Svo var skellt töskunni minni í bílinn sem var með appelsínugulan
HEAVY miða á.., skil
ekki hvernig ég fer að þessu.., ég fæ ALLTAF svona miða á töskurnar
mínar..!!!! Jæja það þýðir ekki að gráta Björn Bónda..!!!
Svo var lagt af stað í leiðangur heim til Griffins hjónanna og á hverju
rauðu ljósi setur Auður upp “flört” svipinn sinn.., þið
ættuð allar að kannast við hann og svo á einu horninu kallar hún
á einhverja ferlega ljóta “latinos” og segir þeim að
koma að tala við mig því mér fyndist þeir svo sætir.., ég hefði
getað stokkið á gelluna og hoppað á henni.., hún er alltaf svo
ÓÞEKK..!!! Jæja.., svo
var heim komið og beint í Thanksgiving dinner.., svaka
flottheitt.., mjög góður matur.., ekkvað annað en bragðlausa
svínasteikin sem við fengum á sunnudeginum, manstu Auður..,
SÚRKÁLIÐ..!!! Svo var
farið með bæn.., og allir héldust í hendur og ég finn hana Auði
skjálfa úr hlátri.., hana langaði svo svakalega til að skella
FEITAST uppúr.., og
þegar Auður er farin að skjálfa úr hlátri þá átti ég nú bágt með
mig.., en sem betur fer þá stóð “bænin” stutt yfir og við
gátum hamið okkur.. fjúkk hefði verið frekar vandræðalegt að
byrja að hlægja meðan fólk er að þakka drottni fyrir
matinn..:/ Auður
ÓÞEKK..!!
Svo var skellt sér í “DRESS—TO IMPRESS” og það var
ekki farið úr honum fyrr en við komum heim um kl 10 á
mánudagsmorguninn.., þetta eru ekki ýkjur dömur og
herrar.., ég vissi ekki einu sinni að ég hefði tekið með mér
strigaskó og náttföt.., því aldrei fór ég í það..!!! Við fórum á
LOVE á fimmtudeginum
sem er einhver klúbbur.., mér fannst það svo hundleiðinlegt.., fólk ekkvað
að drekka og dansa eins og ASNAR..!!!
HAHAHAHA
DJÓK..., hann var
GEÐVEIKUR...!!!
Það sem toppaði það kvöld var samt leigubílstjórinn á
leiðinni heim.., hann byrjaði að tala það að íslendingar væru
ekki svona árásagjörn þjóð því við borðum svo mikinn fisk og
í íslenskur fiskur væri svo ríkur af OMEGA-3
fitusýrum..., ég hefði getað skallað hannn...!!!! Hann
las það í HEALTH-MAGAZINE..
*SKALL*
*SKALL*
Föstudagurinn fór í mallið..,
“BLACK FRIDAY” þar var
eytt ágætlega og svo skelltum við okkur á smá manicure og
pedicure.., þar sem Auður hélt að gellan ætlaði bara að klára á
henni hælana því aldrei ætlaði hún að hætta að raspa þá...,
hehehehe...!! svo hlupum við út í gegnum allt mollið í
bréfinniskóm því
ekki mátti eyðileggja pedicure-ið okkar... svo var
haldið heim á leið, sturta, blástur, spasl í andlit, mjög flegnir bolir, stútur á munn og “3 fílar halda af stað í
leiðangur”..!!! Ég, Auður Ósk og Dagmar...!!! “lipur var þeirra
fótgangur” alla leið að SUBWAY þar sem við tókum
lestina að “Adam
Morgan” (djammgata)..!! “takturinn fannst þeim soldið
tómlegur” eftir smá rassadans og flörterí.., “þannig þeir tóku sér 3 til
viðbótar” Svo fáiði ekki að vita meira um það
kvöld.., hehehehhe.., nema Auður fraus í hel, hún læstist
úti..., sorrí beibí, æ lof jú...!!!!! “STICK 2 YA OWN PUSSY,
BITCH”
Bíðið svo spennt eftir DC baby PART 2 eftir Ærissj
tóroffakoffskí 
Svo voru mamma og pabbi að fara frá
mér í dag.., buhuhhuhuhuhuuuu , þessi yndislegu hjón sem ég kalla mömmu og pabba áttu að sækja mig
á flugvöllinn í Orlando
þegar ég kom til baka frá DC en aldrei sá ég ma og pa á
flugvellinum.., hmmm...!!! Svo fæ ég símtal frá þeim og þau spyrja
mig hvort að ég gæti nokkuð tekið leigubíl að hitta þau á einhverri
bensínstöð..!!!! HA??
Neinei þá gleymdu þau peningunum heima og komust ekki neitt því það
eru tollavegir allt í kringum flugvöllinn og þau voru búin að fá
sekt og allt áður.., hehehehehehe..!!!! LÚÐAR, svo þurftu þau að fá mig
því ég var með penge á mér svo þau kæmust tilbaka...,
hehehehehehe..!!!! En
jæja það var voða gott að hitta þau svona á bensínstöð eftir 3
mánaða fjarveru frá hvoru öðru..!!!
En við erum búin að hafa það voða
gott hérna.., mamma er búin að versla og versla útí eitt eins og
sannur íslendingur í útlöndum..., pabbi greyið að vesenast í
Golfbúðum meðan ég og mamma erum á fullu í GAP og Victoria´s Secret..!!! Og ef þið
vissuð það ekki þá er Pabbi minn sá eini sanni..., mesti
BESSEVISSER sem til
er í heiminum.., juuuu stelpur þið ættuð að koma í ferðalag með
mér og pabba..., þið væruð heim uppfullar af fróðleik..!!!
Svo fór ég með pabba í loftið á Cessnu..., gvuuuð hva það var
skrýtið að hoppa upp í sonna litla vél aftur.., IT WAS EASY..., þar sem mar er
búin að fljúga complex airplane með tveimur hreyflum,
lendingarbúnaði, skiptiskrúfu og öllu þessu drasli þá er Cessna-
EASY FOR McCHEASY..,
þannig ég tók bara á loft og svo tók bara pabbi við vélinni og ég
lét hann bara fljúga.., ég verð að segja að pabbi er mjög góður
flugmaður.., skil ekki hva hann er að gera í þessum
múrarabissness..!!! Pabbi minn, þú ert mjög duglegur að halda hæð
og breytum stefnu.., stolt af þér 
En jæja.., ég þarf víst að opna
blindflugsbókina mína aftur..., úffff þetta er búið eftir viku..,
svo kem ég heim þann 17. des.., og fer ekki aftur út fyrr en 9.
janúar og Bergí mín kemur með í það skiptið.., djamm og djús og
shoppin í Florida BABY
YEAHHH..!!
Jólin eru að
koma 
Neró, ég kem
heim eftir nokkra daga
--Ísí
tjísí--
»
22.11.2006 04:51:13 / iriserla
Hundar
halda að þeir séu menn. Kettir halda að þeir séu
guðir.
Jæja píps.., það er nú ekki mikið að frétta af mér
hérna í augnablikinu, hef ekkert flogið síðan á fimmtudaginn.., það
er ekkert smá skrýtið að vera ekkert að fljúga svona.., mar
eiginlega bara hálfleiðist.., búin að vera að horfa á FRIENDS eins og ég fái borgað
fyrir það.., hehehe En ég á samt flug í fyrramálið með
yfirkennaranum.., við ætlum að gera 2 aðflug saman.., eitt
ILS og eitt
VOR.. bara svona
fyrir ykkur sem skiljið þetta..!!! 
Sko, mamma og pabbi hennar Röggu komu síðasta
föstudag og ég skal nú bara segja ykkur eitt.., mamma hennar var
svo mikið æði að koma með pylsur, pylsubrauð, SS sinnep,
steiktan og remúlaði.., ég sverða sko.., það er búið að vera
ein með öllu ALLA
HELGINA..!!!! vá hva íslenskar pylsur eru mikið gæðafæði..,
ekkvað annað en amerískar SAUSAGES.., ojjjj þær eru
ógeðslegar og svo er þetta líka svo ógisslega ljótt orð..,
SAUSAGES..!!!

En ég er sko húkkt á FRIENDS.., get ekki farið að
sofa nema að hitta vini mina í um það bil 20 mínútur áður en
ég loka augunum… ég er líka búin að vera dugleg að versla mér
seríurnar að núna vantar mig bara seríu 5… Elska þau.. Æji ég
ætla að kvóta aðeins í þau.., vini mína
-
Chandler: Hey, that monkey's got a Ross on its
ass!
-
Chandler: If
I turn into my parents, I'll either be an alcoholic blonde chasing
after twenty-year-old boys, or... I'll end up like my
mom.
-
Joey: What the hell does a
paleontologist need a beeper for?
Monica: Is it like for dinosaur emergencies. 'Help, come
quick, they're still extinct.
-
Rachel: I mean, isn't that just kick-you-in-the-crotch,
spit-on-your-neck fantastic?
-
Rachel: Oh my God. I've become
my father. I've been trying so hard not to become my mother, I
didn't see this coming.
-
Phoebe : They don't know that we
know they know we know.
-
Ross: Chandler Muriel Bing...
Your parents never gave you a chance.
Já svona er lífið
í ameríku…
En vá.., ég er að
fara að hitta hana Auði
mína á morgun, eigum við að pæla.., ohhh hva ég hlakka til að
hitta hana…, og aðeins að fá smá change of scenery..!!! Svo
megið þið sko bíða spenntar eftir myndunum sem verða teknar þarna
takk fyrir.., óóóó Íris og Auður á góðu róli í okkar eigin heimi
verður ávallt ekkvað sniðugt og krassandi..!!!
Það er sko alveg
hryllilegur kuldaboli yfir Flórída núna(kannski ekki eins og heima enn..)
í dag var um 13° og í
gær var um 17° úfff..,
svo er orðið svo kalt á kvöldin að núna er um 8° úti…, ohhh ég er að frjósa
hérna mar… brrrrrrr ég veit þið vorkennið mér ekki neitt, þið sem
eruð að kafna í snjó og frosti..!!! En svo á að byrja að hitna
aftur á fimmtudaginn, þá er spáð um 20-25° hita…, ohhhhh..!!!!
Svo eru jólin
að koma…, jólajóla
jólahjól…, ég er svo mikið jólabarn að ég hlakka svo til
jólanna…, jólatré, jólaljós, jólamatur mmm, jólaskraut, jólasveinar, jólagjafir, jólasnjór og JÓLAKÖTTUR… svo verður líka svo gott að koma heim um
jólin, kyssa alla góða
vini og vandamenn, knúsa Kisann minn, og bara að
hitta ykkur allar stelpur.. ég get ekki beðið eftir því að vera
með vinkonum mínum, því þær eru sko bestu vinkonur í
heiminum og fallegustu vinkonur sem hægt er að eignast..
ELSKA YKKUR
ALLAR..!!!

Voða er edda
ekkvað leiðinlegt blogg.., jæja þá kem ég bara með eina fyndna sögu
til að krydda þetta aðeins…
Hmmm, ég eila er alveg tóm.. hmmm æji ég kem með
ekkvað krassandi frá DC…, ójá það á eftir að verða
óveraldarvefvænt..!!! úffff
Mamma
og pabbi.., ég hlakka ógisslega til að sjá ykkur og hafa ykkur hjá
mér.., get ekki beðið eftir að hitta ykkur í Orlando þegar ég kem
aftur 
ég
þarf að vakna kl 7 þannig ég er farin að sofa
MySpace er tímaþjófur –arg-
Bæjó
P.S. voðalega er gott að hafa
þig hérna Harpa…, það sem við getum spjallað í símann um ekki
neitt..!! Ja ég segi nú ekki neitt.., en við getum sko spjallað..,
thank god its
free..!!
»
17.11.2006 08:22:49 / iriserla
Það er aldrei sóun á tíma að
verja honum með köttum.
Ég sé að þið voruð alveg svakalega
dugleg að svara spurningunum um mig.., þið sem svöruðuð voruð
bara nokkuð nákvæm.., já SNEÐUGT..!!
Það er allt gott að frétta hérna frá Flórída,
nánar tiltekið Vero Beach þar sem nýja fallega íbúðin mín er
staðsett..!!
Ég var að fljúga í fyrradag með
kennaranum mínum sem er náttla ekki frásögufærandi nema hvað að
þegar ég er að æfa eitt aðflugið og er að gera svokallað
“final approach fix” þar
sem mar byrjar á því að minnka power-ið á vélinni, setur niður
lendingabúnaðinn, setur 10° flaps (þið skiljið þetta sem
viljið). Allt gekk að óskum nema að við fengum ekkert
“indication” um að vinstra
aðalhjólið kæmi niður…., úpppsss..!!! Og ég segi sallaróleg við
kennarann minn, “heyrðu við fáum ekkert ljós um að
vinstra aðalhjólið sé niðri” og eftir það byrjaði fjörið
sko.., ég held að James hafi aldrei verið jafn stressaður í
lífinu.., og ekki bætti það að við vorum í næturflugi..,
þannig við byrjum á því að kalla á turninn og létum vita um
ástandið.., svo þurftum við að fljúga tvisvar framhjá
turninum, svo að þeir geti séð hvort hjólin væru öll þrjú
niðri.., turnunum sýndist sjá öll þrjú en þar sem það var dimmt
þá vildu þeir ekki staðfesta það, þannig við héldum áfram
að setja niður hjólin aftur og aftur “manual” en ekki fengum við
neitt ljós í mælaborðið.., hehehe..!!! Við gerðum dýfur alveg á
fullu til að skella hjólunum í lás til að fá ljós en ekkert
gerðist nema allt blóðið endaði í hausnum á
mér.. James greyið alveg á nálum, var ekki að nenna að
standa í einhverju neyðarástandi.., meðan sat ég
sallaróleg, að sjá um radíóið, svo hann gæti einbeitt sér að
fljúga vélinni.. Svo var ekki um neitt annað að ræða en að koma
vélinni niður, á maganum eða á
hjólunum..!! Svo tókum við ákvörðun um það
að gera snertilendingu og sjá hvort vinstra hjólið væri
niðri eða ekki.., því myndi það ekki vera niðri þá myndum
við finna strax fyrir því og ef svo væri þá
myndum við bara fara strax aftur í loftið svo vængurinn
myndi ekki skella á jörðina.., svo kölluðum við turninn til og
turninn búin að kalla til flugvirkja frá skólanum og
allan viðbúnað á standby.., svo komum við inn og
snertilendum, og allt gekk eins og í sögu, vélin vildi
bara rúlla áfram og enginn vængur droppaði niður, þannig James
stoppaði bara vélina kallaði á turninn “við erum lent, öll hjól virðast í
lagi og ÉG ÆTLA EKKI AFTUR Í LOFTIД ahahahaha.., greyið
alveg að farast úr stressi… En jæja, allt gekk vel eins og í
flest öll skipti sem eitthvað kemur fyrir í flugi..
STAÐREYND
: í 99% tilvika sem eitthvað þessu líkt gerist þá er það bara
tengingar eða vírar sem hafa slitnað!!!
Þannig ekki örvænta..!!! í
mínu tilviki var það vírinn sem kveikir ljósið í mælaborðinu
slitinn, þannig hjólið fór niður og í lás en við fengum
ekkert ljós í mælaborðið..!!!
Jæja, núna gerði ég mömmu flökurt..,
greyið.., hún hringir pottþétt í mig á eftir og vill fá mig heim á
stundinni til að vera hjúkka eða ekkvað..!! hehehe

En ég skal bara segja ykkur
öllum það að ég er sko reynslunni ríkari.., þetta er sko ekkvað sem
ég ætla að setja í logbókina mína…!!!!
Svo styttist og styttist í að ég fari og hitti
hana Auði mína Ósk í DC.., ekki nema 6 dagar takk fyrir..!!!
Í alvörunni þá er ég byrjuð að pakka..
Svo styttist náttla að mamma mín og pabbi
minn komi til mín og verði með mér í heila viku.., og svo þegar
þau fara þá eru ekki nema 10 dagar að ég komi til Íslands aftur..,
ohhhh hvað ég ætla að knúsa, kreista, kyssa og kjassa NERÓ minn..!!! ohhh ég sakna svo
bumbulíusinn minn..!!!
En ég var að setja inn myndir og það er í
“Myndir 2” og ég ákvað að
setja password þar sem aðeins þeir sem þekkja mig geta skoðað
það… passwordið er það
sem bróðir minn er kallaður..!!! Enjoy…!!! 

Góða nótt
krakkar
---ísí
át---
»
15.11.2006 04:24:46 / iriserla
æji þar sem ég átti ekki blogg þegar
þetta var í tísku, þá ætla ég að sjá hversu margir þarna úti
nenna að svara þessum spurningum..!!!
Jeijj gaman hjá ykkur
mar... 
SHOOT SHOOT...
1. Hvað kallarðu mig?
2. Hefurðu heyrt mig syngja, ef svo er hvernig hljómaði ég?
3. Hvað á ég eftir að vera að gera á týpísku laugardagskvöldi eftir
tvö ár?
4. Þegar þú hugsar um mig, hvaða tvö lög dettur þér fyrst í
hug?
5. Ef þú þekktir mig ekki, og mættir mér einhverstaðar, myndirðu
halda að ég væri á lausu eða föstu?
6. Þegar þú hugsar til mín hvaða fimm hlutir detta þér fyrst í
hug?
7. Hvernig sérðu mig fyrir þér í hljómsveit?
8. Hvernig stelpa er ég, og í hvaða týpu flokkarðu mig?
9. Hver er uppáhalds söngkonan/söngvarinn minn?
10. Hvaða lag minnir þig mikið á mig?
11. Hvað giskarðu á að ég verði gömul þegar ég trúlofa mig ?
12. Hversu vel telurðu þig þekkja mig?
13. Hvernig stráka fíla ég?
14. Hvað geri ég oftast þegar ég á frítíma?
15. Hvað er mest einkennandi við mig?
16. Hvaða búðir elska ég að fara í?
-svo eru myndir og
meira blogg á leiðinni

-var að kaupa mér
skó, ekki flottir???? 
--peace out--
Æsí
flæsí
»
09.11.2006 06:28:13 / iriserla
“Cats are smarter than dogs. You
can´t get eight cats
to pull a sled through snow”
Komið þið blessuð og sæl öll sömul!!
Hef ég sagt ykkur ekkvað um hann Jamal
“sambýlismann” minn??
Sem btw getur gengið að mér dauðri einn daginn??
Nei,
OK þá skal ég koma með nokkur komment um
hann!!!
v
Jamal er 20 ára og er frá New York
(sýnir sig alveg á slangrinu
hans)
v
Þegar ég segi “Jamal, ég skil ekki hva þú ert að
segja” þá setur hann upp þennan hneykslunar svip og segir bara
“Æris, idds a nújork sleng
görl” HAAAA?? Á ég
bara að skilja það??? Eins og ég sé einhver gettó týpa alin upp
í Brooklyn..!!! Nei, fyrirgefiði, ég var alin upp í
Kópavogur, Ísland..
“æm a pjúr væking and æ
drink blödds from kalfs viðð sjípphorns”
v
Við erum með svaka gott sístem hérna í
sambandi við “matinn”
erum sko með svona shopping list á ískápnum og skiptumst á
að fara og kaupa í matinn. Jamal átti síðasta skiptið og hann fer
og verslar, en NeiNei
hann kemur heim með minna en helminginn af listanum...,
vissi ekki hvað “fresh
mushrooms” væri.., og var í hálftíma að leita að Avocado..!!! KARLMENN..!!! Greyið ég, alveg
sveppalaus...
v
Þegar hann fer út með ruslið þá tekur hann
alltaf BARA
ruslapokann..!! Það er eins og hann sjái ekki pappakassana og
vatnskassana sem liggja upp við ruslatunnuna..!!! ÆJI OHHHH, ég skil idda
ekki...!!
v
Síðast en ekki síst, dömur og herrar..!!
Hver segir að ég sé lengi að gera mig til?? Það sko endar alltaf
með því að ég þarf að bíða eftir honum..!!! Hann er strákur.., og það tekur
hann um 2 tíma að gera sig til þegar við erum að fara
ekkvað..!! Svo þegar mar er að flýta sér og hann reddý og við orðin
alltof sein, þá byrjar hann að PÚSSA SKÓNA sína..!!!
ÆJI
OHHHH...
v
Hann skúraði gólfið um daginn.., hann
skipti ALDREI um
vatn..!!! “það er sko alveg
ennþá sápa í því” Já, ok það er sápa, “en vatnið er samt kolsvart”
hahaha..., ÆJI
OHHHH
v
Þrátt fyrir að hann sé alveg TÝPÍSKUR KARLMAÐUR, ógisslega
kærulaus og utan við sig, þá er hann algert yndi..!! Hann
vill öllum vel og er alveg langbestur í heiminum..!! Ógisslega
fyndin og alveg eldklár..!! Mér þykir alveg endalaust vænt um
hann.., þó svo að ég geti dáið úr pirring stundum..!!!
“Slim Niggas get it poppin 2 dont
sleep” .., dont ask, ekkvað nújorksleng sem ég skil
ekki..!!!!

UppáhaldsPirringurinn Minn

Ég átti mitt besta flug EVER áðan.., allt sem ég gerði
var alveg 100% og svo
voru aðflugin mín alveg PERFECT, böstaði aldrei
MDA, náði alltaf að intercepta radíalinn í
holdings og gerði perfect corrections þegar ég var í
NDB-aðflugi.. ég veit þið hafið ekki hugmynd um
hvað ég er að tala um en Ragga mín, þú skilur þetta..!!
Þannig næsta flug með kennaranum mínum er bara yfirferð yfir allt
saman, svo fer ég í STAGE
2 check á föstudag.. Svo er bara prófið, comin up..!!!
STRESSSSS...!!!!
Ég MANA ykkur öll til
að kíkja á síðuna hans Neró og skrifa í gestabókina, var að
pimpa hana aðeins og bæta inn myndum.. stóri strákurinn
hennar mömmu sín verður að hafa gæjalega
heimasíðu..!!!

Æm át ná
---Íris
Erla---
P.S. Ó MÆ GOD.., ameríkanar eru
byrjaðir að spila jólalög í búðunum og ekkert amatör jólalög..,
Oh Holy Night, á
fóninum takk fyrir pent..!!!
»
06.11.2006 07:32:43 / iriserla
Ég var úti í sólinni í dag.., ætla að
næla mér í smá lit svona þar sem mar er ekki búin að fara út í
sólina í næstum 2 mánuði (hva!! Mar fær leið á því) og þar
sem ég er orðin svo svakalega hvít og fólk sífellt að spyrja mig
hvort að ég sé Eskimói þá ákvað mín bara að skella sér í
sólina. Svo var mín í öllu sínu sakleysi að bera á sig sólarvörn á
fögru leggina og six-pakkann þegar allt í einu þessi
aragrúi af djö... vespum, geitungum eða hva í andsk...
þetta var, ákvað bara svoleiðis að límast við mig og solleiðis
elti mig útum alla sundlaug.., OJJJJ ég hélt ég myndi ekki
verða eldri, þær settust á eyrað á mér og fóru í hárið og ég hljóp
útum alla sundlaug í BIKINÍI (ég+bikiní+hlaup=NONO), öskrandi eins og
bavíani, og það endaði með því að ég þurfti að hoppa útí laug sem
var btw það ÍSJÖKULKÖLD
að geirvörturnar urðu að morðvopnum, svo ég gæti
þvegið af mér þessa blessuðu sólarvörn sem þessar helv...
flugur voru greinilega svo sjúkar í...
ÉG HATA
SKORDÝR....
En þetta var nú ekki alslæmt því
þetta var víst mjög skemmtileg sjón fyrir Röggu sem sat á bekknum
sínum og hló og hló,
meðan flugurnar voru í styrjöld við mig..!!!
Jæja útí aðra sálma, flugsálma!! Ég er að verða búin
með Stage 2 í
blindfluginu en það er skipt niður í 3 stages, þannig mar ætti að
vera búin áður en mar fer til DC, veit samt ekki hvort það
náist því prófið sjálft er svo mikið og þungt og krefst mikils
undirbúnings þannig ég gæti frestað því þangað til að mamma og
pabbi eru farin.., kemur allt í ljós..!! Mar vill vanda sig og ekki gera
þetta í neinni flýti, blindflugið er nefnilega aðal hlutinn af því
að vera atvinnuflugmaður. En þetta er allt orðið svo
skemmtó, mar er farin að líða soldið sonna PROFESSIONAL núna, farin að
fljúga alveg blint samkvæmt “aðflugskortum”, án þess
að líta útúr vélinni og svo rétt fyrir lendingu þá lítur mar útúr
vélinni og sér flugbrautina beint fyrir framan sig.., og það eina
sem mar gerði var að lesa kortin og nota mælanna..!!! SNEÐUGT!!! Og það besta
er að ég er ACTUALLY inní skýjum að
gera þetta..!! OHHH!!!

Þetta er til dæmis
"aðflugskort"
Ég fór í svaka partý á miðvikudaginn,
Kourtney kennari átti afmæli, og það var allur
AVIATOR skólinn þarna eins og hann leggur sig..,
ég náttla var dugleg með hvítvínið eins og ávallt.. (hvítvín er gott í malla fyrir
eskimóa) enn ég get svo svarið fyrir það, partýið byrjaði kl
sex með grillmat og svona svaka amerískt ekkvað og kl níu þá
var hópurinn orðinn svona svaka ölvaður..!! Ég skreið uppí rúm um
hálf fjögur um nóttina, eftir hvítvín, bjór!!! Og alveg fullt af
skotum..!!! Vaknaði svo kl átta, líka svona eldhress, vakti
Jamal (honum fannst það ekki sniðugt, mar
var ennþá soldið íðíí ) og hann sagði mér að gjöra svo vel að
leggja mig aftur..!! án efa besta partý sem ég hef
farið í..!! SNILLD!!!
Juu ég er alltaf að blogga um hva ég
drekk mikið.., hahaha þið haldið örugglega að ég sé orðin ekkver
alki eð ekkvað..!!! ER ÞAÐ EKKI..,
LOFA!!!
Fyrir þá sem vilja senda mér
SMS þá er númerið mitt þarna í linknum
“upplýsingar” og svo getiði sent mér
SMS í linknum “sendið mér SMS” og
ég er SPRINT notandi, og svo virkar þetta bara
eins og siminn.is en ég tek það fram að ég fæ ekki
SMS frá íslenskum númerum..!!!
“thank you, please
come again”

Nenni
ekki að segja meir
Lofja
oll
Íris
Perla Smerla AKA CatLover
P.S. ég er komin með
alveg aragrúa af myndum.., þarf að fara henda þeim
inn..!!!
P.S.S. Auður Ósk??
Ég er með hnút í maganum, ég er orðin svo
EXCITED...
»
30.10.2006 05:55:32 / iriserla
“You must wash ur panties with windex,
cuz I can see myself in them”
Sko, síðustu dagar eru búnir að vera
kreisí, var nebbla að flytja í nýju fallegu íbúðina mína..,
ohh I love it, hún er
svo falleg.., og ég er að gera hana svo kósý.!! Ég fékk
“master bedroom”
(auðvitað því ég er
stelpa) og er með sér baðherbergi innaf herberginu mínu og
Walk-In-Closet sem
er btw bara geðveikt.., ohh mér líður svo vel hérna.., svo á ég
náttla svo agalega skemmtilegan “sambýlismann” sem heitir
Jamal og við erum svona hálf að keppast um að gera herbergin
okkar flottari en hitt.., ég er til dæmis með Grænt-froska þema inn á baði
hjá mér og hann með blátt-Yankee þema.., hann er
náttla true New
Yorker.., Go
YANKEES..!! já og btw, skilur einhver útá hvað hafnabolti
gengur..?? allaveganna er ég ekki að ná því..!!
En aðalmálið er samt það að, góðvinur
minn hann Blair
Underwood, (fyrir ykkur
sem ekki vita þá lék hann sexý sæta lækninn í Sex in the City),
var í góðum fíling að snæða hádegisverð á veitingastaðnum á
flugvellinum.., JÁ TAKK
FYRIR.., ég hélt ég myndi missa mig.., ohh hva ég er ógisslega
spæld yfir því að hafa ekki verið full og vitlaus og sagt ekkvað
við hann.., eða bara hreinlega hoppað á hann og sagt honum að
ég ELSKI HANN.. og að
hann megi svo sannarlega éta mig með salatdressingunni sinni..., ég
er viss um að ég bragðist betur en tómatarnir..!!!! En það sem ég
er svo öguð og dönnuð eins og mamma segir það.., þá bara ákvað ég
að ganga 16 sinnum framhjá honum.., hann hefur örugglega haldið að
ég væri ekkvað skrýtin..!! hehehhehe 

Jæja svo fer að styttast í ferðalagið
mitt til Washington þar sem ég ætla að hitta fallega sprellgosann
minn hana Auði Ósk (sem
ætlar ekki að giftast Sigurði).., og njóta ÞAKKARGJÖRÐAR með henni og svo
ætlum við að skála fyrir Kalkúnum og fallegum karlmönnum..,
Jess mí læk it long
tæm.., Harpa, u better meet us there!!
Herb, Mom and Easy “E”
Rider
FOREVER
Svo vorum við Jamal að spá að
fljúga til Hörpu alla leið til Philadelphia þegar við erum búin
með blilndflugið.., því þá tekur við smá tímasöfnun í fluginu og
við getum í rauninni flogið hvert sem er innan USA.., og okkur fannst það
ekkert svo vitlaust að skella okkur bara til Philly eina nótt og
hitta Hörpu og fjöllu..!!! Það allavega á eftir að vera
gaman.., tekur ekki nema svona 7-8 tíma að fljúga þangað á
Dutchess..!!
Svo eru ameríkanar alveg að missa sig
hérna útaf Halloween..,
það eru allir búnir að skreyta húsin sín með nornum, graskerum, kóngulóum og
allskonar scary drasli.., og svo eru sumir búnir að setja
svona legsteina í
garðinn og allskonar.., ég get svo svarið fyrir þeir sem eru að
missa sig eru örugglega ekkert að vinna, því þetta er í alvörunni
Full time job að skreyta
svona..!! En þar sem ég er flutt í svona krúttlegt íbúðahverfi
þá keypti ég svona grasker sem ég ætla að setja
kerti í og setja síðan fyrir utan hurðina hjá mér svo krakkarnir
viti að þeir geti komið hingað og “Trick or Treat” og þá ætla ég að
vera með svona nammi í skál sem þau geta valið sér, en Halloween er einmitt á
þriðjudaginn..., Jess það ætti að vera gaman.., svo seinna um
kvöldið verður smá svona Halloween-Party hjá okkur
hérna.., þá verður örugglega fengið sér í aðra tánna..(eða kannski bara
báðar)...!!!

Svo var klukkunni breytt í gær..,
hahaha ferlega skrýtið.., alltíeinu var klukkan aftur orðin
eitt þegar hún var tvö fyrir 1 mínútu.., jamm þannig ég er núna
5 tímum á eftir Íslandi.., svona fyrir ykkur sem eruð alltaf að
hringja í mig.., semsagt mamma, maja og Auður..!!! en samt
þið sem eruð að senda mér sms.., ég vildi bara segja ykkur að ég
elska að fá sms frá
ykkur.., bara gaman að fá þau, þó svo ég geti ekki sent tilbaka
þá fer ég alltaf að
brosa..!!!
Svo fer að styttast í að ég komi heim um
jólin.., ég lendi 17. des um morguninn og fer beint heim að knúsa
prinsinn minn sem er bestur í heimi..., og kúra með honum og njóta
jólanna með prinsinum mínum..!!!
Pabbi.., ég veit þú lest þetta,
mamma sagði mér það.., núna verðuru að kommenta.. , og já..,
ég og Jamal vorum að spá í að fljúga með þig til Key West þegar þú kemur,
hvernig líst þér á það??
Jæja, komið nóg í
bili
Happy Halloween
Íris Erla
Underwood

»
18.10.2006 06:28:42 / iriserla
Hæ everybody.., sorry ég er búin að vera
ömurleg að blogga undafarið..!!!
En það er samt búið að vera svo gaman
hjá mér og ég er búin að vera svo bissí að gera allskonar..,
DJAMMA, FLJÚGA, LÆRA,
FLJÚGA, DJAMMA, KYSSA STRÁKA og þið vitið svona þetta
venjulega sem að mar gerir..!!!
Ég fór svo allsvakalega að djamma
eftir prófið og afmælið mitt að ég var lengi að jafna mig.., það
var nebbla þannig að ég fór með Svíunum mínum á Governors (sem er btw klúbbur
hérna) og við byrjuðum heima hjá þeim og þar fékk mín sér
hvítvín, þið vitið.., good ole me með hvítvín og ég
náttla þarf ekki meira en að þefa af tappanum til að finna á
mér en nehhhh það dugði
ekki til heldur kláraði ég hálft gallon af hvítvíni áður en ég
fór á klúbbinn (þið vitið, ég rúllaði inn á staðinn) og svo
var náttla kallað á besta vin minn “barinn” og fengið sér Malibu/pineapple al la Iris,
og ekkert lítið af því neitt.., svo var það TEQUILA..!!!! Síðan ekki
söguna meir...!!!! Já þið sem þekkið mig vitið alveg hvað
gerist þegar ég drekk Tequila og það er sko alls ekki
frásögu færandi á blessaða veraldarvefnum, takk fyrir..!! Ég
hætti að drekka Tequila að góðum ástæðum, PÚNKTUR..!!! jæja það tók
mig allavega pínulítinn tíma að jafna mig eftir þetta
kvöld..!!!
nei takk..!!!!
Nokkrir punktar um mig
núna..
-
Ég er byrjuð í
blindfluginu sem er ógisslega gaman og spennó
-
Það er æði að vera
alltaf að fljúga stórum tveggjahreyflaflugvélum
-
Ég fékk besta
afmælispakka í heimi í póstinum, Eva María sendi mér allskonar
íslenst nammi og þar á meðal sterka brjóstsyka.., NAMMM og takk fyrir mig
Eva..!!
-
Ég er alveg að fara
að flytja inn með Jamal krúttinu mínu.., get ekki beðið eftir að fá
krúttlega tveggja herbergja íbúð sem verður MÍN..
-
Ég skipti um kennara,
nó affenss Ruz, það er ekki vegna þess að hann er Júkki (þú
veist ég elska Júkka) heldur vegna þess að hann er skapstór og
stressandi..., ég veit ekki samt hvort að það sé ekkvað
Júgóslavneskt..,
Siggi?? Er Eva Ruza skapstór og stressandi
stundum???
-
Ég fékk nýjan kennara
sem heitir James og er frá North Carolina og hann er svo ferlega
með mikinn suðurríkjahreim að ég skil hann stundum ekki..!!!
“ju vu he a fla e
fó” SKILDI ÞETTA
EINHVER?? Þýðing: “yeah we have a flight at
four”..!!! COMPRENDE MI AMIGO
-
Hann er samt algert
æði og mjög rólegur og yfirvegaður krúttlegur REDNECK.., sem keyrir um á
pallbíl..!!! “ðöt ma
bo” þýðing: “thats my
boy”..!!!!
Svo er sko aðalmálið á dagskrá núna
er ....., da da da búmm
búmm..., ég er að fara til hennar Auðar minnar til DC over
thanksgiving þann 23 nóv og verð alveg í heila 5 daga..!!!
JEIJJJJJ
partý, djamm, slúður og fíflaskapur með fallegustu vinkonu í
heimi.., sorrí ein
af fallegustu vinkonu í heimi.., þær eru víst
fleiri...!!! En það er samt ekki alveg aðalmálið..,
þegar ég kem heim aftur frá DC þá verður besta mamma og besti pabbi í heimi komin til
Flórída og ég fer beint á hótelið til þeirra til að knúsa þau
og kyssa..!!! ohhh ég get ekki beðið eftir endanum á
nóvember, hann á eftir að vera snilld..!!! Ég og mamma ætlum að
versla saman, svo
ætlum við í
pedicure, við ætlum á ströndina, og fara
út að borða saman og
gera allskonar
krúttó milli þess sem ég verð að fljúga með pabba um hálfa
Flórída.., mamma er flughrædd, hún þorir ekki..!!!!
En ég elska hana
samt..!!!
Neró minn er ennþá sami yndislegi
kötturinn minn sem bíður eftir að mamma sín komi heim um
jólin og verður hjá honum í marga marga daga..!!! Hann
er bestur og það er enginn sem kemst nálægt því að vera betri
en hann..., ég elska
Nóalinginn minn..!!!

Ég veit ekki hvað ég get sagt
meira.., nema ég er með myndir sem ég ætla að setja inn
bráðum..!!!
Sorrí allir hva það leið langt á milli..,
hopefully it will never happen again..!!!
Ég er þreytt
Farin að lúlla
*Æ*R*I*S*
»
16.10.2006 12:24:25 / iriserla
Hæ hæ og
halló
Sorry allir.., ég er
búin að vera ógisslea léleg að blogga..!! Ég hef allskonar mikið að
segja og það kemur blogg í kvöld eða á morgun..,
LOFA..!!!

Elska ykkur og
Neró
Ísí
McBissý
»
Síður: 1 2 3
|
Dagsetning
9. febrúar 2010
Dagatal
| febrúar - 2010 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | | 28 | | Fyrri | Næsti |
|